top of page

Sagan .

Hljómsveitin Tvö dónaleg haust er gömul sál. Hún varð upphaflega til í Menntaskólanum á Akureyri árið 1992 en hét þá Afsakið tilveru okkar. Auk núverandi meðlima voru í sveitinni þá Bjarni Gaukur á bassa sem nú vinnur sem kerfisfræðingur hjá GoPro-Landsteinum, gítarleikararnir Halldór Már Stefánsson sem kennir á gítar í Barcelona og Hörður Vilberg fréttamaður á Skjá einum. Margoft vann sú sveit til verðlauna í hljómsveitakeppni skólans, Viðarstauk, auk þess sem meðlimir hennar höfðu þá mörg aukaverkefni á prjónunum. Tryggvi og Hörður voru t.d. í Skuggunum, einskonar tribute-sveit til heiðurs Shadows, Sigfús var m.a. í pönksveitinni Ragnheiður leiðinlega, Stebbi í Þarmahláku og Gummi hélt úti ballöðusveitinni Logn og blíða. Allar þessar sveitir unnu til verðlauna í hinum ýmsu flokkum. Þetta voru dýrðartímar, í það minnsta fyrir meðlimina.

Síðan tvístraðist hópurinn eftir að menntaskóla lauk, eins og gengur og menn fóru að sinna framtíðinni. Dreifð athygli og dreifðir kraftar skiluðu sér eingöngu í því að meðlimir sömdu ný lög en sameiginleg starfsemi lá að mestu niðri í 4 ár, frá 1993-1996. 
Eitthvað brösuðu Gummi og Stebbi þó saman en neistann virtist vanta. Þá gerðist það. 

Sökum athyglissveltis og söknuðar eftir félagsskapnum sem einkenndi dýrðartímana í menntó ákváðum þeir að gera eitthvað í málunum og blésum til listahátíðar. WEX'96, Wunderbar experience var haldin að Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum. Þar var leikið, lesið og sungið, auk þess sem þeir sýndu fjölda málverka sem þeir höfðu málað þá um haustið. Eitt verka Skúla hafði hlotið nafnið Tvö dónaleg haust og þaðan kemur nafn sveitarinnar. WEX-hátíðin varð að árlegum viðburði á þorra og sífellt jókst þáttur tónlistarinnar. Það varð úr að þeir réðust í allan pakkann: leigja húsnæði, kaupa græjur og reyna að meika það. en fátt virtist ganag í þeim efnum, sjö manna hljómsveit er ekkert grín og eitthvað reyndist erfitt að halda hópnum saman. Tilfinningar komust í spilið og þá vita menn hvernig fer.

En áður en það gerðist tókst þeim að koma einu lagi á safnplötu Skífunnar, Svona er sumarið '99. Prakkarastrákurinn sló í gegn á rás 2 og þar með fengu menn langþráðan smjörþef af frægðinni. En síðan kom tómleikinn og deyfðin sem henni fylgir og í kjölfar þessa kom hlé,  langt hlé. 

En neistinn slökknaði aldrei og nú eru meðlimir reynslunni ríkari, þekkja sjálfa sig og aðra betur og vita hvað þeir vilja. Semja og spila músík fyrir aðra. Langþráður draumur okkar sem hófst á Menntaskólaárunum hefur loksins ræst og platan er tilbúin. Frægir eða ekki frægir, hataðir eða elskaðir...gildir einu. Tvö dónaleg haust er hljómsveit sem spilar tónlist hvort sem ykkur líkar betur eða verr.

Music in the world.

2 dónaleg haust

© 2023 by RISING DRAGON. All rights reserved.

bottom of page