top of page
Sagan .
Áslákur (1979 – 1981)
Hljómsveitin Áslákur starfaði á Egilsstöðum (ein heimild segir Hlöðum) um 1980.
Sveitin mun að mestu hafa verið í sveitaballageiranum og var stofnuð haustið 1979, meðlimir hennar voru Sigurður Friðrik Lúðvíksson gítarleikari, Jón Ingi Arngrímsson bassaleikari, Ragnar Á. Þorsteinsson trommuleikari og Stefán Snædal Bragason hljómborðsleikari.
Viðar Aðalsteinsson var söngvari sveitarinnar um tíma. Hann söng þó ekki með sveitinni á popphátíðinni Austurland ´80 sem haldin var á Reyðarfirði 1980.
Áslákur lék á dansleikjum austanlands eitthvað fram á sumarið 1981 en lagði þá upp laupana, lék undir það síðasta á leiksýningum hjá Leikfélagi Fljótsdalshérðas eystra.
Music in the world.


Áslákur.
bottom of page