top of page

Sagan .

Music in the world.

Cobra.

Cobra (1977)

 

 

 

 

Reykvíska hljómsveitin Cobra starfaði í nokkra mánuði árið 1977.

Sveitin, sem lék eins konar fönkrokk í bland við venjulega balltónlist, var skipuð söngvurunum Geir Gunnarssyni og Rafni Sigurbjörnssyni en aðrir meðlimir Cobra voru Ágúst Birgisson bassaleikari, Björn Thoroddsen gítarleikari og bræðurnir Eyjólfur og Einar Jónssynir trommu- og gítarleikarar.

Sveitin lék nokkuð fyrri hluta ársins 1977 (var stofnuð í byrjun árs) en á haustmánuðum leystist hún upp og var hætt störfum í október.

 

Glatkistan.

 

 

 

 

© 2023 by RISING DRAGON. All rights reserved.

bottom of page