top of page

Sagan .

 Ég er núna búsettur erlendis (e.o. reyndar allir meðlimir nema einn) og hef ekki greiðan aðgang að neinu. Ef ég á eitthvað er það í læstri geymslu í Reykjavík. Ég er ekki einu sinni viss um að ég sé með þær upptökur okkar sem komu út. En það voru lög á einni Snarl spólu Erðanúmúsík og plata sem var gefin út af Smekkleysu í lok árs 1987. Annars er helst að finna upplýsingar um Bleiku Bastana á tímarit.is. Við vorum mjög duglegir að spila á þessum tíma og mikið af myndum og skrifum um okkur í þátíma fjölmiðlum.

 

Annars bara svona grunnupplýsingar. Við stofnuðum hljómsveitina um vor 1987 og vorum þá 4 meðlimir:

Björn Baldvinsson: söngur

Tryggvi Thayer: gítar

Páll Thayer: bassi

Magnús Þorsteinsson: trommur

Við komum bara einu sinni fram í þeirri mynd og gekk frekar illa. Við bættist svo Ívar Árnason á gítar sem hafði töluvert meiri reynslu í bransanum en við hinir. Það var svo þegar við komum fyrst fram í þeirri mynd í lok sumars 1987 að hlutirnir fóru að ganga.

 

Við Páll yfirgáfum svo hljómsveitina vorið 1988. Hún hélt áfram með nýjum meðlimum þá um sumarið og eitthvað lengur en náði sér aldrei á strik eftir nokkrar mannabreytingar og mjög misheppnaða tilraun til að koma út plötu #2.

 

 

Tryggvi Thayer

Music in the world.

Bleiku Bastarnir.

© 2023 by RISING DRAGON. All rights reserved.

bottom of page