
I'm a description. Click to edit me

I'm a description. Click to edit me

I'm a description. Click to edit me

I'm a description. Click to edit me
Sagan .
Söngferill Önnu Vilhjálms hófst í Hafnarfjarðarstrætó þegar hún var smástelpa og var mönuð upp í að syngja fyrir farþegana. Henni var vel tekið enda var stúlkan lagviss og hafði kraftmikla rödd. Nokkrum árum síðar var hún farin að syngja með hljómsveit Gummars Ormslev og var þá aðeins á miðjum táningsaldrinum.Söngferill Önnu er svolítið sérkennilegur. Hún bjó í Bandaríkjunum um tíma, enda gift þar, og söng meira að segja inn á hljómplötu sem gefin var út og dreift þar í landi. Sú plata sást hins vegar ekki í íslenskum hljómplötuverslunum, enda höfðu Íslendingar ekki hugmynd um þetta framtak. Ameríkanar voru sem sé ekkert að flíka þjóðerni stúlkunnar. Hún þótti sláandi lík söngkonunni Connie Francis þannig að hún var stundum fengin til að syngja lög hennar þegar hún bjó erlendis.